19.07.2011
Ísold okkar kpm með þetta gullfallega folald. Það er hestur undan Mjölnir frá Hlemmiskeiði.
17.06.2011
Nagli er undan Val frá Efra-Langholti og Syrpu frá Árbakka. Nagli fæddist 17 júní ;-)
13.06.2011
Kylja koma með kolsvarta stóra hryssu :-) ...undan Val frá Efra-Langholti.
30.05.2011
Hrund kom með rauðskjóttann hest undan Hrana Krákssyni frá Hruna. Kappin hefur fengið nafnið Þrumufleygur.
29.05.2011
Við fengum brúnan hest undan Dögun og Óskari frá Blesastöðum. Myndarlegur gaur með mikið skásetta bóga.
25.05.2011
Þetta er hún Gjóska sem fæddist síðasta dag eldgosins. Hún er undan Þoku Eiðsdóttur og honum Val okkar. Hún er stór og háfætt en liturinn er óræðin ennþá. Verður nú samt sennilega grá.
15.05.2011
Spes kastaði í morgun. Spes er undan Tenór frá Túnsbergi og Orku frá Túnsbergi. Folaldið hennar er rauðblesóttur hestur undan Kráksyninum Hrana frá Hruna og heitir Stormur.
07.05.2011
Tinna Þorradóttir kastaði brúntvístjörnóttri hryssu 7.maí og er það fyrsta folaldið í ár okkur fætt. Folaldið er undan Hring Hróðsyni frá Fellskoti og heitir Snerpa.