FOLÖLD 2012
Ísold / Spuni frá Vesturkoti
Nú er stóra stundinn runninn upp Ísold kastaði í morgun (06.08.2012) spertri og fíngerðri hryssu undan Spuna frá Vesturkoti. Sú stutta er jörp og hefur fengið nafnið Ísafold.
Þoka / Magni frá Hólum
Háfeti Þokusonur og Magna frá Hólum. fæddur 29.júní
Íris / Krákur frá Blesastöðum 1A
Íris frá Efra-Langholti með gullið sitt, Bláhrafn, undan Krák frá Blesastöðum.
Tinna / Nn frá Blesastöðum 1A
Ljósanótt undan Tinnu og Nn frá Blesastöðum.
Þoka / Nn frá Blesastöðum 1A
Þokudóttir og Nn frá Blesastöðum
Kráka / Hákon frá Ragnheiðarstöðum
Kráka með Blómarós Hákonsdóttur.
Héla / Valur frá Efra-Langholti
Þetta er hún Héla með hann Snæ sem er undan Val frá Efra-Langholti (Krumma 0g Venusarson)
Dögun / Krákur frá Blesastöðum 1A
Dögun Rökkvadóttir kastaði 19.maí myndarlegri brúnstjörnóttri hryssu undan Krák Blesastöðum sem hefur fengið nafnið Dama.
Ekkja / Nn frá Blesastöðum
Þessi fagra snót heitir Dimmblá hún fæddist 17.maí og er undan Ekkju og ónefndum Krákssyni.
Stikla / Krákur frá Blesastöðum 1A
Stilka Sæsdóttir kastaði móálóttum hesti undan Krák. Eigandi Stiklu er Sif sem vann við tamningar hjá okkur. Það var búið að gefa það út að þessi hryssa ætti ekki að getað eignast folöld en Guðmar dýralæknir var á öðru máli og fórum við því tilraunastarfsemi og hún var sædd við Krák á Sandhólaferju í fyrra og hér sjáið þið svo afraksturinn :-) Til hamingju með folaldið Sif og fjölskylda.
Venus / Krákur frá Blesastöðum 1A
Fyrsta folald sumarsins er rauðstjörnóttur myndar hestur sem heitir Vorboði, undan Venus og Kráki frá Blesastöðum.