Fréttir
29.12.2010.
Leyftur frá Efra-Langholti er 3.v. efnisfoli undan Ísold frá Gunnarsholti og Aroni frá Strandarhöfði. Nokkrar myndir frá allra fyrstu skiptunum úti á vegi hjá honum Ólafi. Það verður spennnandi hvernig þessi ungi stóðhestur þróast í vetur.
09.12.2010.
Í nóvember tókum við holl 2 í frumtamningum. Bæði geldinga og hryssur. Þetta gekk vonum framar og sýndu tryppin okkur þeirra bestu hliðar. Settum inn nokkrar mydir af námshestunum :-) Við ætlum hinsvega að snúa okkur að jólunum í bili ;-)
Smellið á myndirnar til að sjá stærri, og sjá hver er hvað ;-) !

26.11.2010.
Það er fallegt og kalt þessa dagana. Hrossin styllt í vertarkyrrðinni. Fleiri myndir í myndasafni ;-)
21.11.2010.
Fallega sveitin mín - Hrunamannahreppur 21.nóvember Eg get bara ekki orða bundist yfir fegurð þessa lands og hversu lánsöm við erum að geta notið hennar á hverjum degi. Kíkið í myndasafn til að skoða fleyri myndir ;-)
09.11.2010.
Settum inn mynd af Kráku fínu Kráksdóttur, inn í unghryssum ;-)
03.11.2010.
03.10.2010.
Við vorum með opið hús laugardaginn 30 okt. Það tókst með miklum ágætum og gaman að sjá hvað margir kíktu í sveitina á ferkar köldum degi. Myndavélinn fékk ekkert að koma í hesthúsið fyrr en um það leiti sem flestir voru farnir. Þær myndir sem náðust rata hér á síðuna. Kíkið í myndasafn til að sjá fleiri...
22.10.2010.
Þessi yndilegu kisubörn eru yngstu ferfætlingarnir í Efra-Langholti þessa stundina. Ef einhverjum langar í kisubarn er sá hinn sami beðinn um að gefa sig fram við okkur hér og málinu verður reddað ;-)
21.10.2010.
Frétt af Hestafréttir: 15.10.2010
Hæst dæmdu 7 vetra og eldri stóðhestar frá upphafi.
Hér fyrir neðan má sjá fjórtán stóðhesta sem hlotið hafa yfir 8.60 í aðaleinkunn 7 vetra gamlir eða eldri og er þetta samantekt yfir alla hesta sem hafa verið sýndir frá upphafi kynbótasýninga. Hæstur er Garri frá Reykjavík með einkunnina 8.77, hann er undan Orra frá Þúfu og Ísold frá Gunnarsholti. Ellefu eru undan 1 verðlauna foreldrum. 7 vetra hestar og eldri.
Garri frá Reykjavík hefur hlotið hæsta dóm frá upphafi sýndur í flokki 7 vetra og eldri, hann hlaut einkunnina 8.77. Garri á 280 afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2001, hann á þrjátíu sýnd afkvæmi og átján í 1 verðlaunum. Hæst dæmda afkvæmi hans er Viktor frá Diisa með einkunnina 8.63. Garri er undan Orra fráÞúfu (8.34) og Ísold frá Gunnarsholti(8.19). Garri er með 132 stig í kynbótamati.
Stáli frá Kjarri er rétt á eftir Garra eða annar hæsti með einkunnina 8.76. Fæddur 1998. Stáli á 252 afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2002, tíu eru sýnd og fjögur í 1 verðlaun. Hæst dæmda afkvæmi hans er Bleikur frá Kjarri með einkunnina 8.32. Hann er undan Galsa frá Sauðárkróki(8.44) og Jónínu frá Hala(8.13). Stáli er með 121 stig í kynbótamati.
Illingur frá Tóftum og Þokki frá Kýrholti eru jafn háir eða með einkunnina 8.73.
Illingur er þriðji hæsti með einkunnina 8.73. Hann er fæddur 1998 og á tvöhundruð sextíu og sjö afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2002, tuttugu og eitt eru sýnd og fimm eru í 1 verðlaunum og hæst dæmda afkvæmi hans Sindri frá Vallanesi er með 8.45 í aðaleinkunn. Hann er undan Núma frá Þóroddsstöðum( 8.66) og Hríslu frá Laugarvatni(8.06)
Þokki er fæddur 1997, hann á 247 afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt árið 2001, þrjátíu og eitt sýnt í kynbótadómi og sextán í 1 verðlaun. Hæst dæmda afkvæmi hans er Styrkur frá Eystri-Hól með einkunnina 8.32. Hann er undan Sóloni frá Hóli v/Dalvík(8.31) og Þörf frá Hólum(7.87). Kynbótamat Þokka er 117 stig.
Hraunar frá Efri-Rauðalæk er fimmti hæsti með einkunnina 8.72. Hann er fæddur 1999 og elsta afkvæmi hans er fætt 2004. Hann á hundrað og þrjú afkvæmi í WF, sex sýnd og þrjú í 1 verðlaun. Elva från Solbacka er hæst dæmda afkvæmi hans með einkunnina 8.41. Hann er undan Galsa frá Sauðárkróki(8.44) og Kviku frá Brún(8.04). Hraunar er með 119 stig í kynbótamati.
Fannar frá Kvistum og Gaumur frá Auðsholtshjáleigu eru jafnir með einkunnina 8.69 í aðaleinkunn.Fannar er fæddur 2003. Hann á fjörutíu og eitt afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2006 og ekkert er sýnt. Hann er undan Nagla frá Þúfu(8.44) og Frigg frá Heiði(8.28). Fannar er með 118 stig í kynbótamati.
Gaumur er fæddur 2001 og er með einkunnina 8.69. Hann á hundrað nítíu og níu afkvæmi skráð í WF, þrjú sýnd og tvö í 1 verðlaun. Patrik frá Reykjavík er hæst dæmda afkvæmi hans með einkunnina 8.19. Gaumur er undan Orra frá Þúfu(8.34) og Hildi frá Garðabæ(8.00). Gaumur er með 120 stig í kynbótamati.
Tindur frá Varmalæk er fæddur 1999 og er áttundi með einkunnina 8.68. Hann á hundrað fjörutíu og eitt afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2002 og sex eru sýnd en ekkert í 1 verðlaun. Hæst dæmd er Perla frá Keldudal með einkunnina 7.94. Hann er undan Smára frá Skagaströnd(8.34) og Tinnu frá Varmalæk(8.00). Kynbótamat Tinds er 116 stig. Atlas frá Hvolsvelli og Magnus frá Dalur eru jafnir með einkunnina 8.66 í níunda og tíunda sæti.
Atlas er fæddur 1997 og á níutíu og níu afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2001, þrjú eru sýnd og eitt í 1 verðlaun eða hún Spes frá Stóra-Hofi með einkunnina 8.03. Hann er undan Kormáki frá Flugumýri II(8.30) og Sögu frá Hvolsvelli(7.90). Atlast er með 122 stig í kynbótamati.
Magnus frá Dalur er fæddur 2002, hann á tuttugu og þrjú afkvæmi í WF, elsta er fætt árið 2006 og ekkert sýnt. Hann er undan Pósti frá Dal og Svönu frá Neðra-Ási(8.32). Kynbótamat Magnusar er 121 stig.
Fálki frá Sauðárkróki er fæddur 1994 og er ellefti með einkunnina 8.65. Hann á áttatíu og fimm afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 1997, tvö eru sýnd og ekkert í 1 verðlaun. Spyrna frá Húnsstöðum er hæst með einkunnina 7.88. Hann er undan Fána frá Hafsteinsstöðum(8.41) og Orku frá Sauðárkróki(8.01). Kynbótamat Fálka er 118 stig.
Aðall frá Nýjabæ er fæddur 1999 og er tólfti með einkunnina 8.64. Hann á hundrað níutíu og fjögur afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2002, sjö eru sýnd í fullnaðardóm og eitt í 1 verðlaun eða hann Miðill frá Nýjabæ með einkunnia 8.22. Hann er Adam frá Meðalfelli(8.24) og Furðu frá Nýjabæ(8.06). Kynbótamat Aðals er 116 stig.
Sær frá Bakkakoti er fæddur 1997 og er þrettándi með einkunnina 8.62. Hann á 499 afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2000, níutíu og eitt eru sýnd og fjörutíu og sex eru í 1 verðlaunum. Hæst dæmda afkvæmi Sæs er Glíma frá Bakkakoti með einkunnina 8.58. Hann er undan Orra frá Þúfu(8.34) og Sælu frá Gerðum(8.11). Kynbótamat Sæs er 127 stig.
Hrannar frá Svaða-Kol-Kir er fæddur 1995 og er fjórtandi með einkunnina 8.60. Hann á níutíu afkvæmi skráð í WF, elsta er fætt 2000, eitt er sýnt og það er í 1 verðlaunum, hún Sæta från Edeby með einkunnina 8.16. Hann er undan Depli frá Votmúla 1(8.57) og Kjarvöl frá Árbæ(Ekki sýnd). Kynbótamat Hrannars er 121 stig.

Tók skemmtilegar haustmyndir af hrossunum. Myndirnar eru í Ýmsar myndir ;-)
18.10.2010.
Frétt af Hestafréttir 16.10.2010:
Átta hryssur fæddar 2009 yfir 120 stig í kynbótamati
Hundrað sextíu og átta hryssur eru yfir 110 stig í kynbótamati, fimmtíu og þrjár eru yfir 115 stig og átta eru yfir 120 stig. Langhæst er Ösp frá Efri-Rotum, hún er undan Kvisti frá Skagaströnd og Frægð frá Hólum. Kynbótamat Kvists er 126 stig og Frægðar 121 stig. Kvistur á tvær efstu hryssurnar fæddar 2009. Tekið skal fram að ekki eru allar hryssur fæddar 2009 komnar með kynbótamat, þar með vantar margar hér inní, einnig eru aðeins 2000 færslur sýndar í WF.
Hér fyrir neðan má sjá átta hryssur fæddar 2009 sem eru yfir 120 í kynbótamati. Kynbótamatið er feitletrað og undirstrikað.
Myndin hér t. v. er af Vornótt okkar ;-)
IS2009284066 Ösp frá Efri-Rotum 1520 84 IS Lifandi 124 Kvistur frá Skagaströnd Frægð frá Hólum
IS2009288570 Fjöður frá Kjarnholtum I 2700 88 IS Lifandi 121 Kvistur frá Skagaströnd Fjörgyn frá Kjarnholtum I
IS2009288226 Vornótt frá Efra-Langholti 2500 88 IS Lifandi 121 Krákur frá Blesastöðum 1A Venus frá Reykjavík
IS2009281385 Gunnur frá Ásbrú 2500 81 IS Lifandi 121 Ágústínus frá Melaleiti Samba frá Miðsitju
IS2009286505 Óskadís frá Miðási 2500 86 IS Lifandi 120 Kvistur frá Skagaströnd Ósk frá
Hestheimum
IS2009285260 Dögun frá Þykkvabæ I 6420 85 IS Lifandi 120 Ómur frá Kvistum Freyja frá Prestsbakka
IS2009282315 Anna frá Hamarsey 3400 82 IS Lifandi 120 Aron frá Strandarhöfði Álaborg frá Feti
IS2009275278 Nn frá Víðivöllum fremri 1600 75 IS Lifandi 120 Gári frá Auðsholtshjáleigu Varða frá Víðivöllum fremri

17.10.2010.
Það verður opið hús hjá okkur hér í Efra-Langholti laugardaginn 30.október frá kl:13.00
20.folöld og tryppi á ýmsum aldri til sölu og sýnis, ásamt öðrum ræktunarhrossum búsins. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Berglind og Ragnar.
Be there, or be square ;-)

Fyrir um mánuði síðan voru nokkur 3.v. tryppi tekinn tekinn inn til frumtamningar. Meðal annara voru þessar dömur, sem hafa nú lokið fyrstu kennsluönn og stóðust allar með prýði. Þær eru ornar reiðfærar, opin gangur í þeim öllum og verulega samvinnuþýðar. Nú fá þær frí fram að áramótum.
Draumsýn frá Efra-Langholti (Dökkbleikskjótt), er undan Draumi frá Ragheiðarstöðum og Hrund frá Reykjaflöt.
Önnur í röðinni er Lilja frá Helgastöðum (bleikskjótt blesótt), undan Krumma frá Blesastöðum og Kápu frá Helgastöðum.
Og sú rauðblesótta er Reisn frá Blesastöðum 1A. Undan Krumma frá Blesastöðum og Báru frá Brattholti.

21.09.2010.
Nú er heyskap lokið þetta árið í Efra-Langholti.
Raggi keyrði síðustu há rúllurnar heim í dag og er nóg til af heyjum fyrir hrossin í vetur.
20.09.2010.
Við erum byrjuð á frumtamningunum og eru 7 tryppi inni á 4.v . Bara stuð og skemmtileg unghross. Myndir af tveim peyjum sem eru mættir í grunnskólann ;-)
Sá rauði er Leiftur 3.v. stóðhestur, undan Ísold frá Gunnarsholti og Aroni frá Strandarhöfði. Sá grái er svo Freyðir.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

04.09.2010.
Nú ER komið að því að taka hesthúsið í gegn áður en haustvertíðin hefst ,fyrst var allt sápuþvegið og síðan farið með háþrístidælunni yfir.
Svo er eitt svolítið athyglisvert fólk er hvatt til að sótthreinsa hús sín með þar til gerðu efni eins og Virkon en biðið við kílóverðið á því er hærra en á kókaíni er ekki allt í lagi !! er verið að taka okkur hestamenn í R......... ?
03.09.2010
Þessum yndislegu kisubörnum vantar góð heimili. Læðan er ljúf og kelin, og fressinn er fjörkálfur og hrikalega skemmtilegur gaur. Þetta er auðvitað úrvals ræktun og eðalkettir ;-)
31.08.2010.
Haustið er komið hjá graðhestunum eins og fleirum, og voru þeir frændur Valur og Ísadór teknir úr hryssum sínu eftir að hafa fyljað þær nánast allar (duglegir strákar ;-). Þeir vorum með smá stæla eftir sumarvinnuna, en allt féll þó í ljúfa löð stuttu seinna. Tók myndir af "hittingnum" , kíkið á þær í myndasafni.
30.08.2010.
Haustið er komið og fer blíðum höndum um okkur eins og sumarið hefur gert. Tók rúntinn með vélina og tók nokkrar myndir og fangaði það sem gladdi augað ;-) Endilega kíkið á Ýmsar Myndir ! Smellið á þær til að sjá stærri ;-)
23.08.2010.
Íris frá efra-Langholti var sýnd á kynbótasýningunni á vesturlandi. Hún er alsystir Garra frá Reykjavík. Sýnandi var Jakob Svavar Sigurðsson.
Höfuð: 8,0 Háls/HerðarBógar: 8,0 Bak og lend: 8,5 Samræmi: 8,0 Fótagerð: 8,0 réttreiki: 7,5 Hófar: 8,0 Sköpulag: 8.00
Tölt: 8,5 Brokk: 8,5 Skeið: 5,0 Stökk: 8,5 Vilji og geðslag: 8,5 Fegurð í reið: 8,5 Fet: 7,5 Hæfileikar: 7,85 Hægt tölt: 8,0 Hægt Stökk: 8,0
Aðaleinkunn: 7,91
Smellið á myndirnar til að sjá stærri...

21.08.2010.
Hekla frá Syðra-Velli er frábær hryssa sem var í þjálfun hjá okkur í vetur. Hún er búin að vera í fríi í vor og sumar eins og mörg önnur hross .... Við fórum svo í stutta og þægilega hestaferð um daginn og ákváðum í kjölfarið að renna henni í gegnum dóm. Við eru mjög sátt við útkomuna, þrátt fyrir að hún haafi ekki náð að sýna skeið, sem hún býr yfir.
Sýnandi var Þórður Þorgeirs.
Höfuð: 7,5 Háls/Herðar/Bógar: 8,0 Bak og lend: 8,0 Samræmi: 8,0 Fótagerð: 8,5 Réttleiki: 7,5 Hófar: 8,0 Sköpulag: 7,98
Tölt: 8,5 Brokk: 8,5 Skeið: 5,0 Stökk: 8,0 Vilji og Geðslag: 8,0 Fegurð í reið: 8,5 Fet: 7,0 Hægt Tölt:8,0 Kostir: 7,70
Aðaleinkun: 7,82
Fleiri myndir á sölusíðu

28.07.2010.
Flölskyldan í Efra-Langholti fór ásamt góðum hópi í hestaferð. Riðum út og suður, norður og niður... í frábæru veðri ;-). Fleiri myndir inni á mynasafni.
25.07.2010.
Við byrjuðum að heyja 8 júlí hér í Efra-Langholti. Það var nóg á túnunum þannig að nóg verður fyrir ferfætlingana að bíta og brenna. Strákunum finnst þetta heldur ekki leiðinlegur tími ein og sést á meðfylgjandi myndum ;-) ...
25.07.2010.
Settum inn nokkrar frábærar myndir teknar í íslenskri sumarnótt. Skoðið allar inni á "ýmsar myndir " ;-)
25.07.2010.
Þessi fína hryssa er síðasta folald sumarsins, fædd 14 júlí undan Syrpu og Val. Spræk og fín og hefur fengið nafnið Þruma ;-) Fleiri myndir inni á folaldasíðunni ;-)
08.07.2010.
Settum inn nokkrar sætar sumarmyndir ... Kíkið í Ýmsar myndir (undir linknum more;-)
08.07.2010.
Þessi fallega hryssa sem heitir Lukka, fæddist 25 júní og er undan Álfi frá Selfossi og Kötlu frá Flugumýri. Eigandi hennar er Þórdís Anna Gylfadóttir.
08.07.2010.
Þessi fallega hryssa heitir lilja og er undan Val og Fjólu frá Reykjaflöt og er fædd 4 júlí. Smellið á myndirnar til að sjá stærri.
08.07.2010.
Þessi fallegi foli er undan Ísadór okkar. Bættum honum inn á afkvæmasíðu Ísadórs, sem og fallegri hryssu frá Sunnuhlíð. Hægt er að skoða Ísadórsbörn á sérstakri síðu ;-)
20.06.2010.
Ísadór er farinn að sinna hryssum hér í Efra-Langholti. Hann var MJÖG glaður að hitta dömurnar sínar. Hægt er að bæta inn hryssum til Ísadórs þótt búið sé að sleppa honum, en gott eftirlit er haft með stóðhestunum.
Myndasería er inni á myndasafni ,-)
Myndasería er inni á myndasafni ,-)
19.06.2010.
19.06.2010.
Það eru komnar myndir af nýjasta folaldinu, bleikstjörnóttum hesti undan Ísadór og Kylju frá Kyljuholti, inn á fölöld !
Settum líka inn tvær myndir af ungfolunum Leyftur og Vála ;-)

12.06.2010.
Við slepptum Val í hólf hér í Efra-Langholti í gær. Hann tók fagnandi á móti hryssunum sem eru komnar til hans, en ekkert mál er að bæta inn hryssum til hans síðar. Smelltum nokkrum myndum af kallinum í kvennabúrinu og eru þær myndir í myndasafni ;-)
10.06.2010.
Við vorum að færa til ógeltu tittina. Því fylgdi mikið fjör og eru nokkrar skemmtilegar myndir í myndasafni ;-)
10.06.2010.
Hrímfaxi er nýr á sölusíðunni okkar. Hann er 2.v. ógeltur undan Bláskjá frá Kjarri. Móðirin er Sýn frá Voðmúlastöðum, undan Hrafni gamla frá Holtsmúla.
09.06.2010.
Það er búð að vera nóg að gera við að fylgjast með fæðingardeildinni svokölluðu. Settum inn nokkrar myndir af "deildinni". Kíkið í myndasafnið til að skoða ;-)
07.06.2010.
Folöldi halda áfran að detta í heimin. Diljá kastaði svartri (grárri) hryssu undan .Val frá Efra-Langholti
06.06.2010.
Vendinga kastar brúnskjóttri hryssu undan Þristi frá Feti. Hún hefur fengið nafnið Þruma. Eigandi er Guðný Erla Gylfadóttir. Til hamingju !!!
30.05.2010.
Þessi bleikálótta dama kominn í heiminn í dag í blíðunni. Stolt mamma er Hrund og faðir er Ísadór frá Efra-Langholti. Kíkið á fleiri myndir í folöld ;-)
24.05.2010.
Það var mikið grín og mikil gleði þegar veturgömlu tryppunum var sleppt út eftir veturinn. Það hefði mátt misskilja ástandið og halda að þau hefðu ekki séð sólina fyrr, þótt það fari mikið fjarri. Kíkið í myndasafnið til að sjá fleiri myndir ;-)
21.05.2010.
Katla kom með þessa fínu rauðblesóttu hryssu undan Ísadór í morgun ;-) Fleiri myndir af þessari og hinum inni í folöld ;-)
19.05.2010.
Fyrsti rigningardagurinn hjá litlu hestunum. Gott að ofankoman er helst í formi vatns, en ekki ösku eins og sum dýr (og menn) þurfa að glíma við ekki svo langt í burtu.
19.05.2010.
Nýtt folald er komið í heiminn hér í Efra. Það er jarpur hestur undan Dögun frá Efra-Langholti (Rökkvi x Ísold) og Töfra frá Kjartansstöðum.
17.05.2010.
Það eru komnar nýjar myndir inn af folöldunum nýju. Kíkið á Vorboða, Ímynd og Vind !
Settum einnig inn skemmtilegar myndi inn í "Allt hitt" .... ;-)

15.05.2010.
Tvö ný folöld poppuðu í heiminn í dag :-) Ísold kom með jarptvístjörnótta hryssu undan Kráki frá Blesastöðum 1A og Þoka kom með vindóttan hest undan Glym frá Innri-Skeljabrekku. Skoðið fleyri myndir af þeim með því að smella á folöld ;-)
13.05.2010.
Frábær dagur í dag til að veifa myndavélinni framan í litlu dýrin. Þetta er Vornótt undan Kráki og Venusi. Fleiri myndir af henni, Heru og Hrafnakló inni á Myndasafni !!!
11.05.2010
Ísadór frá Efra-Langholti verður til afnota á húsi hjá okkur í Efra-Langholti. Sunnudaginn 13 júní tekur hann svo á móti hryssum í Bjálmholti í Landssveit.
Verð er 70.000,- með öllu.
Verð er 70.000,- með öllu.
07.05.2010
Stóðhestar til afnota í Efra-Langholti 2010
Fjögra vetra folarnir okkar Valur og Ísadór standa hryssueigendum til boða. Þeir verða til afnota hér á húsi í Efra-Langholti og svo í hólfi frá og með 15 júní 2010. Verð undir hvorn þeirra er 70.000,- með öllu.
Nánar uppl. um þá er að finna undir Stóðhestar, og myndir af þeim frá í vetur má sjá í myndasafni ;-)

05.05.2010
Nú er óhætt að segja að vorið sé komið ! Fyrsta folaldið er fætt hér í Efra :-) Venus kastaði rauðstjörnóttu hestfolaldi 3 Maí, undan Hnokka frá Fellskoti. Drengurinn er gullfallegur og því ekki leiðinlegt að fylgjast með honum á meðan beðið er eftir fleiri folöldum.
Hægt er að sjá fleiri myndir með því að kíkja á linkinn hér fyrir ofan : Folöld ;-) Þar eru einnig nokkrar myndir af eldri árgöngum.

Spes frá Túnsbergi er hryssa á 4.v. Hún er undan hæfileikasprengjunni Tenór frá Túnsbergi ( sem er svo undan Garra) Hún var frumtamin í vetur og óhætt að segja að það sé skemmtilegt ganglag í dýrinu... (fleiri myndir af henni inni á myndasafninu).
29.04.2010.
Smelltum inn myndum og fleiru inn um hann Garra hér að ofan ! Setti einnig inn myndasafn inn á stóðhestasíðuna af Ísaki frá Efra-Langholti.
24.04.2010
Tamningakonan okkar hún Alla "Aðalheiður Einarsdóttir" gerði sér lítið fyrir og var stgahæsti knapinn í Uppsveitadeildinni ! Á myndinni er Alla ásamt vinnuveitendum, Berglindi og Ragnari.
18.04.2010
Settum inn Myndasafn (efst til hægri). Þar eru komnar inn myndur af ungu stóðhestunum okkar Val og Ísadór. Eftirtektarverðir drengir þar.
13.04.2010.
Þá erum við komin í loftið með heimasíðu. Ætlunin er að hafa ávalt uppfærða sölusíðu og yfirlit yrfir ræktunina. Ekki hika við að senda okkur fyrirspurnir ef ykkur brennur eitthvað á hjarta.
Myndir af hrossunum okkar eiga svo eftir að tínast inn.
Myndin hér til hægri er af Vef frá Efra-Langholti, nánari upplýsingar um hann á sölusíðu ;-)