EFRA-LANGHOLT
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Söluhross
  • Garri
  • Stóðhestar
  • Hryssur
  • Ungfolar
  • Unghryssur
  • Folöld 2011
  • Afkvaemi Ísadórs
  • Afkvæni Vals
  • Myndasafn 2011
  • Hestaferð 2011
  • Sagan af Jóni og Lúkasi
  • Krakkahestaferðin
  • Fréttir 2010
  • Myndasafn 2010
  • Myndasafn 2, 2010
  • Folöld 2010 & 2009

Fréttir.

14.05.2012

Picture
Stilka Sæsdóttir kastaði í morgun í -2 stiga frosti og roki þetta er fyrsta folaldið hennar og það er móálóttur hestur undan Krák. Eigandi Stiklu er Sif sem vann við tamningar hjá okkur. Það var búið að gefa það út að þessi hryssa ætti ekki að getað eignast folöld en Guðmar dýralæknir var á öðru máli og fórum við því tilraunastarfsemi og hún var sædd við Krák á Sandhólaferju í fyrra og hér sjáið þið svo afraksturinn  :-) Til hamingju með folaldið Sif og fjölskylda. 

10.05.2012

Gloppa frá Hafsteinsstöðum kastaði áðan bleikálóttum hesti undan Kvist frá Skagaströnd. Eigandi Gloppu og folaldsins er Magnús Mattíasson :-) 

06.05.2012

Sonur Venusar þroskast og dafnar vel og er nú farin að bíða eftir fleirri folöldum til að leika sér við enda eins og öll folöld mikill fjörkálfur( folald ). Hann hefur fengið nafnið Verðandi. 

02.05.2012

Spennandi tímar framundan ! Fyrsta folald sumarsins fætt og er það rauðstjörnóttur myndar hestur undan Venus og Kráki frá Blesastöðum. 

02.05.2012

01.maí var Firmakeppni Smára haldin í fallegu veðri en svolítið köldu. Gísli tamningarmaðurinn hjá okkur tók þátt og komst í 10.hesta úrslit á höfðingjanum Þyrni frá Garði. Þyrnir er hestur sem allir geta haft gaman af til að mynda hafa allir í fjölskyldunni keppt á honum hvort sem það eru börn eða fullorðnir hann er hestur sem er alltaf hægt að treysta og því er hann notaður óspart við tamningarnar á veturna. Svo er hann sá allra besti í hestaferðunum á sumrin því þá nýtist rými hans og vilji frábærlega. 

02.05.2012

Tamningar eru í góðum farvegi og nó að gera. Hér er Gísli að temja stóðhestinn Sprota Töfrason sem þau Ragnheiður og Valgeir á Kjalarnesi eiga. 

29.04.2012

Picture
Hríma og folaldið hennar undan Ísar frá Keldudal. Hrímu seldum við Ragnhild Ringlander í Svíðjóð. Við óskum Ragnhild og fjölskyldu til hamingju með folaldið. 

29.04.2012

Picture
Tímin flýgur áfram eins og sést á þessari mynd. Á henni erum við Venus ofsakátar  hún 6.v og ég hummm man ekki :-) báðar ungar og ferskar! 

24.04.2012

Myndir af Viktori Loga með verðlaunabikarinn sem hann nældi sér í á punktamóti Smára !Stoltur strákurinn :-) 

22.04.2012

Kæru vinir Gleðilegt Sumar Vorið er komið og grundirnar gróa..........:-) Nokkrar myndir teknar í dag í vorstemmingunni.

20.04.2012

Fíni bikarinn sem Íris fékk á aðalfundi HRFH, sem efsta hryssa í eign félagsmanns hlýtur.  

18.04.2012

Næstkomandi fimmtudag ( Sumardaginn fyrsta ) verður útskrift hjá okkur sem erum búin að vera í Reiðmanninum síðastliðin tvö ár. Útskriftinn verður á Hvanneyri og ætlar hópurinn frá Flúðum að gera sér glaðan dag, fara út að borða og gista eina nótt á Hvanneyri :-) og að sjálfsögðu fylgjumst við með Skeifukeppninni og keppninni um Reynisbikarinn. 

18.04.2012

Picture
Það var heilmikið um að vera um helgina.  Á laugardaginn var þriðja og síðasta punktamót vetrarins,Jón Valgeir og Mósi kepptu í pollaflokk og fengu viðurkenningu. Viktor Logi sigraði í barnaflokk á Þyrni frá Garði og Aron Ernir varð fjórði í samanlögðu á Erró frá Neðra-Seli. Frúin á heimilinu tók sig til og sigraði unghrossaflokkinn á Reisn frá Blesastöðum , yndisleg hryssa með úrvals tölt og brokk.  Berglind varð svo í 3-4 sæti á Þoku frá Reyðará í 1.flokk frábær alhliða hryssa undan Þristi frá Feti.

Á sunnudeginum var Ræktunarsýning á Flúðum á vegum Hrossaræktarfélags Hrunamanna sem er einmitt 100 ára í ár og hefur starfað samfellt öll árinn. Við í Efra-Langholti sýndum fjórar hryssur sem við stefnum á að sýna og setja svo í ræktun hjá okkur. Þær eru:
Þoka frá Reyðará (jarpskjótt) undan Þrist frá Feti og Syrpu frá Litla-Moshvoli. Þoku eigum við til helminga með vini okkar Jóni Finnssyni.
Birta frá Syðra-Kolugili (leirljós) undan Hágangi frá Narfastöðum og Fanndísi frá Áslandi.  Berglind keypti Birtu þegar hún var folald ( leirljósi liturinn er í uppáhaldi)
Draumsýn frá Efra-Langholti (bleikskjótt) er undan Draum frá Ragnheiðarstöðum og Hrund frá Reykjaflöt, Hrund er í eigu Guðrúnar Th vinkonu okkar og fáum við annað hvert folald undan henni.
Reisn frá Blesastöðum (rauðblesótt) er undan Krumma frá Blesastöðum og Báru frá Brattholti. Ragnar keypti hana af Magnúsi Trausta á Blesastöðum til að gefa Berglindi í Morgungjöf þegar þau giftu sig þann 08.08.08.

Þessi sýning tókst í alla staði vel og gaman að sjá þau fjölmörgu hross  sem mættu á sýninguna. Það er greinilega mikill hugur í hrossaræktendum í Hrunamannahrepp.


17.04.2012

Váli (jarpur) og Leyftur (rauður) eru komnir til Daníels sem ætlar að skóla þá aðeins til fram á vorið.Váli er á 4.vetur undan Venus frá Reykjavík og Stála frá Kjarri, en Leyftur er á 5.vetur undan Ísold frá Gunnarsholti og Aroni frá Strandarhöfði. Ekkert að þessum gaurum :)

18.03.2012

Picture
Þessir lofandi stóðhestefni njóta sólarinnar en eithvað segir mér að þeim sé farið að lengja eftir vorinu og grænu grasi. 

17.03.2012

Við fengum sjaldséðan gest í heimsókn á föstudaginn. Þetta er Brandugla og virðist vera ungur fugl hún var mjög yfirveguð og fældist ekki þótt að verið væri að taka myndir af henni.

16.03.2012

Tamningar eru á góðu róli og ekki hægt að kvarta undan neinu þar.Hér sést Gísli á 3.v hryssuni Ísbjörgu, Stáladóttur og Ísoldar. Gísli og Aron Ernir notuðu góða veðrið á fimmtudaginn vel, þeir fóru saman í reiðtúr upp í Langholtsfjall. Aron er mjög áhugasamur og duglegur að hjálpa okkur í hesthúsinu.

15.03.2012

Tamningar ganga vel. Þótt veðrið hafi verið sveiflukennt eru bara mjög góðir dagar inná milli. Þjálfunin á hrossunum er í góðu lagi og jákvæður stígandi í þeim.  Nokkur ný hross komu í tamningu um mánaðarmótinn og má þar nefna tryppi undan Eldjárn, Dug, Goða,Hetti og Orra.

14.03.2012

Picture
Stund milli stríða. Eftir erilsaman dag getur verið gott að setjast niður með tölvuna og spá í hross eða fótbolta. Það halda sko ekki allir með sama liðinu í enska fótboltanum hér á bæ:-)

10.03.2012

Viktor Logi stóð sig vel í smalanum í Uppsveitardeild Æskunar hann hafnaði í 7.sæti og fékk fyrir það 4 stig, hann keppti á hestinum Erró frá Neðra-Seli. Næsta keppni í deildini verður þrígangur. 

03.03.2012

Fengum heimsókn frá félögum úr Hrossaræktarfélagi Tungnamanna.Þetta var dágóður hópur af hressu og skemmtilegu fólki sem var virkilega gaman að taka á móti og sýna þeim í hesthúsið. 

22.02.2012

Myndir frá fyrsta vetrarmóti Smára, sem var haldið í frábæru veðri laugardaginn 18 febrúar. Jón Valgeir keppti í pollaflokki og stóð sig frábærlega. Viktor Logi og Aron Ernir kepptu í barnaflokki, Viktor á Þyrni frá Garði og lenti í öðru sæti og Aron á Erró frá Neðra-Seli og lenti í þriðja sæti.Frúin á bænum keppti á Reisn frá Blesastöðum 1A í Unghrossakeppni og varð efst í þeim flokki og í Fullorðinsflokki 1 flokki keppti hún á Þoku frá Reyðará og hafnaði í fimmta sæti.

21.02.2012

Þetta eru þær Bláklukka og Vorljós. Bláklukka sú móálótt,vindótta er okkur fædd,við seldum hana til Austurríkis til þeirra Hans og Danielu. Skjótta 
hryssan Vorljós keyptu þau fyrir norðan. Þær voru báðar hér í Efra-Langholti í tamningu og fóru svo í byrjun árs til Austurríkis og virðist bara hafa það mjög gott þar. 

17.02.2012


Síðasta laugardag 11.febrúar var haldið upp á 100 ára afmæli Hrossaræktarfélags Hrunamanna.
Þar sem ég er í stjórn þessa félags finnst mér bæði ljúft og skylt að segja örlítið frá því. Afmælið byrjaði á málþingi í félagsheimilinu þar sem þeir Ágúst Sigurðsson og Gunnar Arnarsson voru með framsöguerindi. Ágúst ræddi um hrossarækt í landinu síðustu 100 ár og hvernig hans sýn er á  hvernig hún gæti þróast næstu 100 árin. Þar fór hann inná mál eins og rannsóknir, erfðaframfarir, sýningar  og hvert við stefnum með ræktun á Íslenska hestinum. Gunnar Arnarsson fór vítt og breitt í sínu máli og sagði okkur hvað hafði reynst honum og sinni fjölskildu best í sambandi við ræktun.
Gaman var að því hvað þeir Gunnar og Ágúst voru orðnir sammála um margt enda orðnir reynslumiklir í ræktun báðir tveir til dæmis voru þeir sammála um að stærðin á hestinum væri orðin góð og óþarfi að reyna að stækka hann enn meira. Þeir voru líka alveg sammála um að þær hugmyndir um að færa yfirlit  kynbótahrossa yfir á hringvöll væri slæm hugmynd. Ekki vildu þeir heldur hafa fjöldatakmarkanir inn á Landsmót. Fjörugar umræður sköpuðust af máli þeirra og margar spurningar voru látnar dynja á þeim.
Í sal félagsheimilisins var búið að koma upp myndasýningu frá hrossabúum sveitarinnar og einnig voru myndir frá Sigga Sigmunds látnar rúlla á skjávarpa.
Um kvöldið var svo haldin hátíðarkvöldverður sem Hótelið á Flúðum sá um. Veislustjórn og skemmtiatriði voru í höndum þeirra Stefáns Helga Stefánssonar, Davíðs Ólafssonar og Helga M Hannessonar. Það er hægt að segja að þeir hafi verið stórkostlegir, frábærir söngmenn og drepfyndnir í ofanálag.
Félaginu voru gefnar gjafir í tilefni afmælisins. Fyrir hönd sveitafélagsins gaf Jón Valgeirsson Sveitastjóri verðlaunabikara fyrir hæst dæmda stóðhestinn og hæst dæmdu hryssu, ræktuð og í eigu félagsmanna. Hrossaræktarfélagið í Biskupstungum gaf félaginu fallegan verðlaunagrip sem Hrossaræktarbú ársins mun hljóta.
Ákveðið hefur verið að opna heimasíðu fyrir Hrossaræktarfélagið og ætlar Guðrún Th  að halda utanum hana.
Afmælisnefndina skipuðu þau Magga í Túnsbergi Einar Logi Miðfelli og Palli í Núpstúni. Þau eiga heiður skilið fyrir vel heppnaða hátíð. Þrefalt húrra fyrir þeim  

02.02.2012

Picture
Núna hefur Vorboði sonur Venusar og Hnokka frá Fellskoti eignast nýja eigendur út í Svíþjóð, það eru Marie-Louise Sandelin ásamt  Björcks  Islandshästar Innilega til hamingju.

Stort grattisWe wish the new owners to congratulateon with their stallion. 

03.02.2012

Þetta er Krapi frá Meiri-Tungu við seldum hann til Danmerkur til ungrar stúlku sem heitir Caroline Skoropa. Það er alltaf gaman að fá fréttir af þeim hestum sem maður lætur frá sér. Krapi gat ekki fengið betra heimili Caroline elskar hann og hugsar mjög vel um hann. Krapi er með frábært geðslag og var auðtaminn.Við höldum áfram að fylgjast neð Krapa og Caroline í framtíðinni. 

31.01.2012

Picture

Hekla er seld. Við óskum nýjum eigendum innilega til hamingju.

24.01.2012

Picture
Nú er vetrarstarfið byrjað á fullu !

Það er mikið að gera og hver dagur með sæmilegu veðri og þokkalegu færi dásamaður.
Dagurinn í dag var ansi spaugilegur því að það hafði snjóað í nótt og Raggi fór strax í bítið að skafa reiðveginn á traktornum. Það var farinn einn reiðtúr, það hlóðst verulega í hóf svo að það var gert hlé á útreiðum,enda komin meiri snjókoma. Um hádegi hrapaði hitastigið niður og því fór Raggi aftur á traktornum að skafa því að nú átti ekki að hlaðast í hóf sólin var líka farinn að skína og veðrið frábært, Á stað var farið og náðust þrír reiðtúrar sá síðasti endaði á því að við Gísli teymdum hrossin okkar fótgangandi heim það hlóðst í hóf og það var orðið mjög sleipt. Restin af deginum var notaður til að dunda inni ,rakað undan faxi, járnað og tamið í inniaðstöðunni. Á þessu sést að við sem búum á Íslandi ( og eigum ekki Reiðhöll) verðum að sæta lagi þegar veður eru ákjósanleg og nota hverja mínútu til hins ýtrasta. Góður dagur er að kveldi komin og tilhlökkun eftir þeim næsta. 
Á mynd má sjá Gísla á stóðhestinum Leyftri, Aronssyni.


04.01.2012

Picture
Formlegum hátíðarhöldum er nú lokið og venjuleg rútína í dagsins amstri að byrja. Skólin og leikskólinn byrjar á morgun 03. janúar og ég held að það séu bara allir ánægðir með það.Ekki þar fyrir að drengirnir mínir gátu bara ómögulega farið snemma að sofa í kvöld það örlaði ennþá á spennu í kroppnum, ekkert sem annasamur skóladagur og íþróttir lagar ekki :-) 

02.01.2012

Í dag fórum við að sortera hrossin til að undirbúa morgundaginn, þá ætlum við að taka inn fleirri tamningartryppi og einnig að taka folöldin undan hryssunum. Tamningarmaðurinn okkar í vetur verður drengur góður, Gísli Guðjónssson og er frá Selfossi.Það er mikil tilhlökkun hjá okkur að byrja vetrarstarfið enda mikið af efnilegum tryppum.

27.12.2011

Jólasnjónum kyngir niður hér í Efra-Langholti sem hefur sinn sjarma þegar maður þarf ekki að vera mikið á ferðinni því hálkan er gríðarleg.Það gæti samt verið gaman að járna á ís-fjaðrir og taka smá töltreið á ísnum.

24.12.2011

Picture
Kæru vinir og vandamenn ! Fjölskyldan í Efra-Langholti óskar ykkur Gleðilegra Jóla, með þökk fyrir árið sem er að líða :)

Dear Friends ! Wish you all a Merry Cristmas ! :-) and a happy new year !

01.12.2011

Myndir af afhendingu verðlauna á ráðstefnunni Hrossaræktin sem haldin var í Bændahöllinni. Tókum við þar við viðurkenningu fyrir hana Ísold frá Gunnarsholti. 
 
Umfjöllun um Ísold á Eiðfaxa.is
Umfjöllun um Ísold á Hestafréttum.is

29.11.2011

Það er nú helst í fréttum hér í Efra-Langholti að frumtamningartryppin hafa lokið skólagöngu sinni í bili og eru komin í frí. Það gekk vel og vorum við búin að fara út á öllum nema einu sá hafði nokkuð ákveðnar skoðanir og verður hann því áfram í skólanum um hríð. Ég verð nú að segja að Stálabörnin, að öðrum ólöstuðum komu skemmtilega á óvart, afskaplega heilsteypt námsfús og hreyfingarfalleg. 

Kettlingarnir fengu allir nýtt heimili á sunnudaginn (1 í aðventu) spurning hvort þetta verði Jólakettir :-) 

17.11.2011

Kisubörnin kátu eru komin á kreik. Það er ekki að spyrja að frjóseminni hér á bæ, Loppa kom með fjóra litla gleðigjafa, 3 læður og einn fress. Það styttist óðfluga að þeir verði nógu gamlir á ný heimili svo þeir sem hafa áhuga á þessum gullmolum endilega að hafa samband :-D

25.10.2011

Flaggskipið okkar hún Ísold frá Gunnarsholti er komin með Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi!
Ísold á nú 5.dæmd afkvæmi og 116 í kynbótamati


Umfjöllun um Ísold á Eiðfaxa.is
Umfjöllun um Ísold á Hestafréttum.is
Fyrsta folaldið hennar Garri frá Reykjavík trjónir á toppnum  hann er með 1.verðlaun fyrir afkvæmi og er efstur allra stóðhesta með 1.verðlaun fyrir afkvæmi með 43.dæmd afkvæmi og 128 í aðaleinkunn kynbótamats.
Næsta dæmda  afkvæmi er Venus frá Reykjavík  hún er með 8.33 í aðaleinkun og 119 í kynbótamati
Ísak Hugasonur frá Efra-Langholti 7.85 8.31 8.13 115  
Íris Orradóttir frá Efra-Langholti 8.02 8.24 8.15 122
Ísadór Þóroddssonur frá Efra-Langholti 8.16 7.5 7.77 113  
Dögun  Rökkvadóttir slasaðist á fæti svo ekki var hægt að sýna hana og er hún komin í folaldseignir. Hún er með 115 í kynbótamati
Leyftur Aronssonur er nú í tamningu, hann skartar miklum myndarskap og eðlisgóðu tölti. Kynbótamat 119
Ísbjörg Stáladóttir kom inn í frumtamningu í október og reynist vera ósköp þæg,töltgeng og heilsteypt tryppi. Kynbótamat 121
 Ímynd Kráksdóttir, fædd 2010.
Ísarr, undan Mjölni frá Hlemmiskeiði, fæddur 2011.

24.10.2011

Ekki er nú öll vitleysan eins. Rákumst á þessa tjalferðalanga sem höfðu tjaldað í landi Efra-Langholts. Ekki vitum við hverra manna fólkið var en ætlum okkur að vistin hafi tæplega verið hlý, en þegar við vorum á ferðinni var -1° og ágætis næðingur. Við fórum samt með hana Kilju úr í mýri með folaldið sitt hana Kátínu. Sú er undan Val frá Efra-Langholti, gullfalleg alveg. Við og Kilja létum tjaldbúana ekki á okkur frá þótt svo að svefnpokarnir hafi nú helst mynnt okkur á líkpoka í frostinu.

19.10.2011

Núna er síðasta sónarskoðunin afstaðin hér í Efra-langholti og nú hefst biðin eftir vorinu og afrakstri sumarssins. Það voru ýmsir hestar notaðir á hryssurnar og það verður spennandi að sjá þessa kokteila :-D
Sá sem á flest fylin (ásamt Val) er meistari Krákur frá Blesastöðum, ekki leiðinlegt það. Undir hann fóru systurnar þrjár Ísoldardætur,Venus, Dögun og Íris. Einnig fór Sæsdóttirin Stikla frá Eystra-Fróðholti undir hann en það fyl eigum við með henni Sif, eiganda Stiklu. Drottningarmóðirin sjálf Ísold fór undir Spuna  frá Vesturkoti, og verða allir puttar og tær krossaðir að fylið haldist í þeirri gömlu en hún er nú ekkert folald lengur. Undir hann Val frá Efra-Langholti (sem er nú ný seldur til Þýskalands) fóru Katla frá Ytra-Dalsgerði, Héla frá Meiritungu, Prinsessa frá Höfn og Syrpa frá Árbakka, og undir Ísadór frá Efra-Langholti fór Klassík frá Akureyri . Þrjár hryssur fóru svo undir Nn frá Blesastöðum, sem er vindóttur 2.v. foli undan Kráki og Blábjörgu frá Torfastöðum, en það eru þær Tinna frá Fellsenda, Þoka frá Meðalfelli og Ekkja frá Nesi. Kráka frá Ósabakka fór svo undir Hákon frá Ragnheiðarstöðum.

13.10.2011

Opna húsið afstaðið og tamningar byrjaðar. Við hefðum nú geta verið heppnari með veður síðasta laugardag, spáin var vægast sagt ókræsileg, sem hafði þó ekki áhrif á það góða fólk sem kíkti við í Efra-Langholti þennan dag. 

03.10.2011

Við ætlum að endurtaka leikinn frá í fyrra (það var svo rosalega gaman há okkur) og hafa OPIÐ HÚS næstkomandi laugardag (8 okt). Við ætlum að smala hrossunum heim og hafa þetta heima við ef fólk hefur áhuga á að kíkja á efnileg unghross, sem mörg hver eru til sölu. Við ætlum líka að fylla hesthúsið svo það sé auðveldara að skoða dýrin . Við bjóðum alla hjartanlega velkomna að kíkja við milli kl  14-17. Kaffi á könnuni. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kveðja. Berglid og Raggi ;-)

22.09.2011


Valur frá Efra-Langholti hefur verið seldur og er kaupandi hans Alma Drumbl frá Þýskalandi.
Valur er mikill höfðingi og eftirtektarverður hestur og verður hans sárt saknað hér á bæ en jafnfrant óskum við nýum eiganda innilega til hamingju með hann.
Valur er undan 1.verðlauna hryssuni Venus frá Reykjavík (8.33)  Fyrir Kosti fékk hún 9.5 fyrir stökk,  9.0 fyrir Tölt, - Vilja og geðslag og               Fegurð í reið.  8,5 fékk hún fyrir Brokk - hægt tölt og hægt stökk. Fyrir byggingu er hún með 8.29 þar af 8,5 fyrir Höfuð - háls og herðar - Samræmi og hófa.
Faðir Vals er skrefstóri rýmishesturinn Krummi frá Blesastöðum 1A sem er einnig komin á erlenda grund. Aðaleinkunn hans á LM 2008 var 8.53. Fyrir hæfileika 8,80 þar af 9,5 fyrir Tölt og 9,0 fyrir Brokk - stökk - vilja og geðslag.

13.08.2011


Þessir ungu folar Váli Stálason og Venusar ( jarpur) og Hrímfaxi Bláskjássonur og Sýnar Hrafnsdóttur ( móálóttur,vindóttur)
Verða teknir inn í haust og byrjað að temja þá.

13.08.2011

Picture

Þessi þræl myndarlegi 2.v foli er undan Krák og Blábjörgu Andvaradóttur og er í eigu Magnúsar og Hólmfríðar á Blesastöðum hann var hjá okkur í sumar hjá nokkrum hryssum og fyljaði þær allar.
 

12.08.2011

Jæja kæru vinir nú er haustið komið með sínum sjarma. Hér er búið að sulta, fjárréttirnar verða um næstu helgi og nánast búið að sóna allar hryssurnar.
Hrossasala er eithvað að fara í gang með haustinu og vorum við að selja hann Val okkar til Þýskalands.

12.08.2011

Hestar í haustsólinni...

31.08.2011

Picture
Skoðið afkvæmi Vals frá Efra-Langholti hér !

29.08.2011

Picture

Æskulýðsdagur Smára var um helgina. Strákarnir okkar tóku allir þátt og var keppt í Þrautakeppni og Mjólkur-tölti og var þetta virkilega skemmtilegur dagur sem endaði á reiðtúr í frábæru veðri. 

Myndin var tekin í fyrra.

27.08.2011


Nú eru síðustu kynbótasýningum sumarsins að ljúka og hægt að fara einbeita sér að öðrum hlutum sem fylgja sumarlokum eins og að slá hánna,  sóna síðustu hryssyrnar og fara að huga að tamningartryppunum, svo væri nú hægt að fara í berjamó með strákunum :-)                     

25.08.2011

Ísadór var sýndur á síðsumarssýningunni á Hellu. Árángurinn var ekki eins og við vonuðumst eftir, en hann fékk 7.77 í aðaleinkunn. Ísadór fær nú hvíld fram að áramótum og bætir vonandi á sig nokkrum kílóum á meðan, því að drengurinn er orðin allt of grannur.  Svo tekur við nýtt og spennandi þjálfunartímabil.  Hann á  mikið inni og kemur vonandi sterkur inn á næsta ári.

18.08.2011

Jæja það er eithvað að gerast hér á bæ.
Þoka frá Reyðará Þristdóttir fór í fordóm á Miðfossum núna 16.ágúst og fékk glæsilegan byggingardóm 8.49 þar af 9 fyrir Háls og herðar og Samræmi.
Hæfileikadómurinn var ekki eins hár en prýðilegur samt fyrir klárhross 7.52 . Hún kom út með 7.91 sem er vel við unandi hjá 5.v tryppi.

08.08.2011

Ísarr Mjölnisson með mömmu sinni Ísold.

02.08.2011


Jæja þá er síðasta folaldið fætt sem von var á hér á bæ.
Það var brúnstjörnóttur hestur undan Drift sem að vinur okkar Alli Sæm á.  Nú á Drift að fara undir Leyftur frá Efra-Langholti Aronsson.

27.07.2011

Picture
Fórum í bráðskemmtilega hestaferð í júlí með frábæru fólki. 

Myndir úr ferðinni er hægt að skoða hér ! ;-)

21.07.2011

Picture
Þetta gullfallega folald fæddist í gær ( 20.júlí) Það er hestur undan Ísold frá Gunnarsholti og Mjölnir frá Hlemmiskeiði.

Fleiri myndir af þessum prins inni á Folaldasíðunni ;-)

20.07.2011

Picture
Þriðjudaginn 19.júlí fórum við í bráðskemmtilega Krakkahestaferð. Við fórum með vinafólki okkar og börnum þeirra og var ferðin farin algerlega á þeirra forsemdum. Við vorum á reið í 6.klst með fjölmörgum stoppum og nestistímum. Yngstu meðlimirnir sem voru á hestbaki voru 5.ára og svo uppúr. Við fengum frábært veður, þegar heim var komið var tjaldað og grillað og skemmt sér fram á nótt. Allir sem tóku þátt: takk fyrir frábæran dag!

Klikkið hér til að skoða skemmtilegar myndir frá deginum ;-)

15.07.2011

Picture
Kráka okkar var sleginn svo illa á bóginn að hún gat ekki lyft fæti og er jafnvel möguleiki á að hún hafi brágast við höggið. Hún bólnaði mikið og sýkla og bólgueyðandi lyf unnu ekki á bólguni til að byrja með. Á endanum var farið með hana á Sandhólaferju í aðgerð sem virðist við fyrstu sýn hafa tekist vel. En nú þarf ræfilinn að hýrast inni í stíu í 6.vikur þegar sumarið er í hámæli ( hvað ég get vorkent henni) við krossum nú fingur og vonum að hún gangi heil til skógar eftir þessar 6.vikur.

14.07.2011

Sólrún frá Efra-Langholti er konin á sölusíðuna okkar ! Hún er 3.vetra. Faðir er Ísak frá Efra-Langholti og móðir er Syrpa frá Árbakka.

14.07.2011

Sumar ! sumar, sumar og sól ! :-D Var einhver að tala um húsið á sléttunni ;-)

20.06.2011

Jæja nú er komin dómsdagur og Guðmar dýralæknir kom í dag til að gelda þá sem ekki fengu stóðhestapassan en þeir sem fengu náð fyrir augum eiganda sinna og þóttu eithvað til að bera sem stóðhestaefni voru myndaðir í gær. Það voru þeir Vorboði (Hnokkason, rauður), Örlygur (Töfrason, jarpur), Vindur (Glymsson, vindóttur) og Orrasonurinn hans Alla Sæm sá brúni. 
Vindur sá Vindótti er til sölu ! Glæsilegur foli !

17.06.2011

Í dag fórum við Bára vinkona í heimsókn til Krissu á Jaðri sem við vorum búnar að ætla mjög lengi. Það var yndislegt veður og við röltum í girðinguna til Stíganda frá Stóra-Hofi hjá honum var meðal annara drottninga hryssan hennar Báru hún Flækja sem kastaði hestfolaldi undan Val frá Efra-Langholti í vor og hefur hann fengið nafnið Flækjufótur.

17.06.2011

Þessi nýkastaða hryssa er undan Kylju og Val og er með stærri folöldum, hún er lang stærst þrátt fyrir að vera yngst. Hún er bikasvört og verður klárlega grá. Fleiri myndir af þessari dömu inni í Folöld 2011. Sú skjótta er frá Erlu og Jonna og er undan Heklu og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum.

15.06.2011

Íris frá Efra-Langholti fór í fyrstu verðlaun á Miðfossum um daginn. Hún er undan Ísold frá Gunnarsholti og Orra frá Þúfu og því alsystir Garra frá Reykjavík.

13.06.2011

Kylja kastaði í dag , Annan í Hvítasunnu  kolsvartri hryssu. Daman er feikna stór og var köstunin var frekar erfið.

13.06.2011

Nú eru hryssurnar búnar að sleppa tappanum sem sat í þeim í kuldakastinu og það fæddust tveir Smárasynir frá þeim Erlu, Jonna og Þórdísi í gær.Það var svolítið skondið vegna þess að fyrst kastaði hryssan hennar Þórdísar jörpum hesti og Erla var á svæðinu og kom til að skoða  rétt eftir að hún var farinn kastaði svo hennar hryssa og það var líka jarpur hestur. Svo að núna eiga þær systur (og Jonni auðvitað) báðar jarpt hestfolald fætt sama dag undan sama hesti. ég tel víst að það verði einhver metingur í Garðabænum á næstunni.
Stoltir eigendur Jonni og Erla ásamt fjölskyldu komu í dag að líta á folöldin sín sú skjótta er Hákons og Hekludóttir en sá jarpi nýkastaði er Smára og Brúnku sonur.

13.06.2011

Litlir sætir kettlingar vekja alltaf lukku hjá ungu kynskóðinni... Yndislegir gormar.

12.06.2011

Smelli inn nokkrum myndum af henni Reisn okkar frá Blesastöðum 1A. Myndirnar eru teknar á yfirlitssýningu á Miðfossum nú fyrir helgi... Knapi er Helga Una Björnsdóttir.

09.06.2011

Picture
Fórum með hana Draumsýn í byggingardóm á Hellu í gær. Hún fékk góða byggingareinkunn eða 8,50. Daman er 4.v. undan Draumi frá Ragnheiðarstöðum (Orri x Krás Ragnheiðarstöðum) og Hrund frá Reykjaflöt (Hilmir Sauðárkróki X Perla).

Höfuð 8.5  -  Háls/herðar/bógar 8.5  -  Bak og lend 8.5  -  Samræmi 8.5  -  Fótagerð 9  -  Réttleiki 7.5  -  Hófar 8.5  -  Prúðleiki 8.5   
Sköpulag 8.5

07.06.2011

Kynbótasýningar í fullum gangi.... Þessar hryssur voru sýndar á Miðfossum í vikuni. Íris (jörp) frá Efra-Langholti, setin af Jakobi Sigurðssyni og  Kráka frá Ósabakka (rauð). Einnig Reisn (rauðblesótt) frá Blesastöðum1A, setin af Helgu Unu Björnsdóttir. Allt fínar hryssur sem við erum ánægð með.

07.06.2011

Picture
Þetta stórmyndarlega hestfolald er undan honum Val okkar og Nös frá Syðra-Velli. Takk fyrir myndina Þorsteinn ! ...og til hamingju með þennan sperrta gaur.

03.05.2011

Picture
Nú eru sýningar í fullum gangi og eru nokkur hross frá okkur að fara í dóm. Þetta eru fín hross og vonin að þau fái sanngjarnan dóm. á myndinni er Hekla frá Syðri -Velli og knapin á henni er snildarreiðmaðurinn Helga Una Björnsdóttir. Á milli sýningastunda er verið að þeytast með hryssur undir stóðhesta. Þetta er annarsamur tími en líka með þeim skemmtilegri. Tamningarkonan okkar hún Sif sem er búin að vera með okkur í vetur er nú hætt og farin að sinna öðrum hugðarefnum. Við óskum henni velfarnaðar og komum til með að sakna hennar og Ævars, sem passaði mjög vel inn í strákagerið hér. Framundan eru skemmtilegir tímar,  fleirri folöld á leiðinni, Landsmót,heyskapur, heimsókn í Suðursveit,  og margt margt fleirra. Bara gaman. :-)

31.05.2011

Folöldin hreinlega hrynja úr hryssunum þessa dagana, enda staða tunglsins hagstæð. Dögun kastaði í fyrradag, gullfallegu brúnu hestfolaldi undan Óskari frá Blesastöðum og Hrund kastaði í gær rauðskjóttu hestfolaldi undan Hrana frá Hruna, gríðarstór slöttólfur. Það er auðvitað ekkert skemmtilegar en að fylgjast með fæðingardeildinni en fleiri myndir af þessum prinsum má sjá á folaldasíðuni !

31.05.2011

Það er ekki alla daga sem það næst á mynd þegar hryssurnar kasta, en þetta er samt annað skiptið í ár sem það gerist og alltaf jafn gaman. Þær eru nú oftast snöggar að þessu blessaðar. Hér er hún Hrund frá Reykjaflöt að kasta rauðskjóttum hesti undan Hrana frá Hruna.

30.05.2011

Folöld hafa endalaust aðdráttarafl og bara gaman að fylgjast með þessum elskum þroskast og dafna. Sú jarpa er Aska, undan honum Val okkar og Syrpu, en Jón og Magga sendu okkur mynd af djásninu. Rauðskjótt er svo hún Herðubreið undan Heklu og Hákoni, bleikálótt er undan Stála og Gloppu, brúntvístjörnótt er Snerpa undan Tinnu og Hring og brún er undan Val og Þoku.

26.05.2011

Þetta er hún Gloppa frá Hafsteinsstöðum sem stórspekúlantinn Magnús Matthíasson á. Hún var svo sæt að leyfa okkur að fylgjast með því þegar hún kastaði, og látum myndirnar tala sínu máli ;-)
Folaldið er hryssa unda Stála frá Kjarri...
Smellið á myndirnar til að sjá stærri ;-)

26.05.2011

Þetta er hún Gjóska sem fæddist síðasta dag eldgosins (25.05.2011). Hún er undan Þoku Eiðsdóttur og honum Val okkar. Hún er stór og háfætt en liturinn er óræðin ennþá.

26.05.2011

Vorið er komið og grundirnar gróa.... Horft yfir fæðingardeildina á fallegu vorkvöldi.

25.05.2011

Kettlingarnir hennar Loppu eru að verða 3.vikna og eru að byrja að sjá og kanna heiminn, bláeygðir og saklausir. Þeim sem vantar litlar og yndislegar veiðiklær endilega hafið samband ;-)

23.05.2011

Á meðan eldfjallaeyjan Ísland er að spúa úr sér heldur lífið áfram.  Sú skjótta fæddist í morgun og er undan Heklu og Hákoni Álfssyni. Eigendur hennar eru Erla og Jonni og  geta þau verið  montin af djásninu. Með á myndasyrpu eru svo hin öskufolöldin, en sú tvístjörnótta er undan Tinnu og Hring frá Fellskoti.  Hún hefur hlotið nafnið Snerpa, en hún er búin að fara í fyrirsætuskóla og kann alveg að stilla sér upp ;-) Rauðblesóttur er sonur Spes Tenórsdóttur og Hrana Krákssyni frá Hruna, og heitir hann Stormur. Stjörnóttu "tvíburarnir" eru svo Lúkas Töfrason og Snerpa Hringsdóttir.

23.05.2011

Picture
Muggur frá Hólmum og Garpur frá Mið-Fossum eru seldir. Óskum nýjum eigendum velfarnaðar með þessa fínu hesta :-)

16.05.2011

Picture
Nú er þetta allt að fara í gang. Spes kastaði í gær ! Spes er undan Tenór frá Túnsbergi og Orku frá Túnsbergi. Folaldið hennar er rauðblesóttur hestur undan Kráksyninum Hrana frá Hruna.  Skoðið fleiri myndir inni á folöld 2011 ;-) ...en þar eru komnar inn fleiri myndir af Tinnudóttir og Hrings...

16.05.2011

Bóndinn skellti sér á Val í blíðunni...

16.05.2011

Picture
Lítil saga af litlum strák og litlum hesti ....Smellið hér til að skoða ;-)

12.05.2011

Það gengur vel með 4.v. hryssurnar Reisn (rauðblesótt) Krummadóttir frá Blesastöðum og Draumsýn (Bleikskjótt) frá Efra-Langholti. Smelltum inn myndum í blíðunni af þessum efnis hryssum. Smellið á myndirnar til að sjá stærri ;-)

11.5.2011

Picture
Vorið er svo sannarlega komið, með kvakandi fuglum og endalausri birtu :-) Nokkur augnablik voru myndfest og hægt að skoða í myndasafni 2011  ! 

09.05.2011

Tinna Þorradóttir kastaði brúntvístjörnóttri hryssu 7.maí og er það fyrsta folaldið í ár okkur fætt. Folaldið er undan Hring Hróðsyni frá Fellskoti. Fleiri myndir í Folöld 2011 ;-)

09.05.2011

Picture
Loppa gaut 5.kettlingum við mikin fögnuð drengjanna hér í Efra-Langholti. Nú er bara að hafa samband við frúna á bænum og panta eitt hreinræktað kisubarn frá Efra-Langholti ;-)

06.05.2011

Nókkrar myndir af stóðhestunum Leyftri (rauður4.v) og Val (grár 5.v) í léttu trimmi í vorsólinni. Leyftur er gullfallegur og efnilegur Aronssonur. Valur töltsprengja undan Krumma frá Blesast5öðum1A. Smwllið á myndir til að sjá stærri.

06.05.2011

Picture
Nýtt hross á sölusíðuni ! Blúnda frá Arakoti, Mjög efnileg fimmgangsmeri !  Fleiri myndir á sölusíðu.

 Verð 1.500.000 kr

02.05.2011

Nú er 1.maí að baki og Uppsveitardeild Æskunar og Firmakeppninni Smára lokið og allir nokkuð sáttir. Pollarnir í Efra þeir Viktor,Aron og Jón fengu viðurkenningarpening og húsfrúin lenti í 3.sæti í firmakeppnini á henni Heklu frá Syðra-Velli .  Hægt er að skoða fleiri myndir frá Uppsveitadeildinni og Firmakeppnini á www.smari.is undir myndaalbúm.

25.04.2011

Á Páskadag fæddist fyrsta folald ársins hér í Efra-Langholti. Það voru ekki hlýlegar móttökur sem það fékk, kuldi og snjókoma, þannig að móðir og barn fengu að fara á dekurdeildina, þ.e. inn í gömlu hlöðu þar sem vel fer um þau á meðan veðrið er eins fúllynt og raun ber vitni. Hryssan er Brella frá Reykjaflöt og folaldið, sem er hestur er undan Töfra frá Kjartansstöðum. Eigendur eru Guðrún og Lúlli.

17.04.2011

Dásamleg helgi að baki. Ræktunarveisla Hrossaræktarfélags Hrunamanna tókst með miklum ágætum. Við mættum með 5 hryssur, þær Venus, Íris, Þoku, Reisn og Birtu, og sýndum einnig hann Vála Stálason 3.v. ;-)

Karen og Ida hafa lokið verknámstímanum hjá okkur og eru nú á leiðini aftur til Noregs. Þetta eru yndislegar stelpur og duglegar og komum við til með að sakna þeirra.

Smellið á myndirnar til að sjá stærri ;-)

13.04.2011

Picture
Ræktunarveisla Hrossaræktarfélags Hrunamanna verður næstkomandi föstudag 15.apríl  kl:20 í Reiðhöllinni á Flúðum.
Fram koma nokkur ræktunarbú sveitarinnar. Einnig verður kynning á stóðhestum.
Þar á meðal má nefna Gæðingafaðirinn Svein-Hervar frá Þúfu sem verður í girðingu félagsins í allt sumar.

Við í Efra ætlum að mæta með hross frá okkur. Váli Venusar Stálason 3.v. verður rekinn til. Þær Íris Orradóttir og Ísoldar, Þoka Þristsdóttir og svo Venus sjálf, en hún er undan Andvara frá Ey og Ísold, og er mamma Vals og Vála.  Einnig mætir hún Reisn Krummadóttir og  hún Birta Hágangsdóttir. Vonumst til að sjá sem flesta  ! ;-)

Athugið að við erum búin að uppfæra sölusíðuna, fullt af spennandi hrossum þar til sölu.

12.04.2011

Picture
Blómarósirnar í Efra-Langholti. Lengst til vinstri er Karen frá Noregi síðan er Ida líka frá Noregi og síðan Sif frá Þýskalandi. Karen og Ida komu í verknám í 2.vikur frá bændaskóla í Noregi og eru hörkuduglegar og yndælar stelpur, og ekki er Sif heldur af verri endanum, bæði fær knapi og dugleg.

29.03.2011

Picture
Tamningarkonan Siv er komin til starfa hjá okkur og er hún kærkomin viðbót í hesthúsið hún er þrældugleg og fær reiðmaður. Það er líf og fjör í Efra-Langholti því Siv á 2.ára strák sem er mikill fjörkálfur og passar því fínt inn í strákagerið hér.

23.03.2011

Setjum hérna inn fleiri myndir af honum Örlygi frá Efra-Langholti. Þetta er flottur gaur sem gaman er að horfa á. Smellið á myndirnar til að sjá stærri.

19.03.2011.

Í gær var farið með tvö folöld í hesthúsinu hér í Efra-Langholti á folaldasýningu Hrossaræktarfélags Hrunamanna sem haldin var í Reiðhöllinni á Flúðum. Mikið var um falleg folöld enda metnaður í gangi hjá félagsmönnum.
Það var þvi ekki leiðinlegt að koma heim með sitthvorn bikarinn, fyrir efsta sætið í hvorum flokki hestar og hryssur. Örlygur okkar vermdi efsta sætið í strákaflokkinum, en hann er undan Rökkvadótturinni Dögun frá Efra-Langholti og Töfra frá Kjartansstöðum. Efsta merfolaldið varð svo hún Hneta Hrundardóttir og Ísadórs frá Efra-Langholti. Þess má geta að Hrund átti einnig efsta merfolaldið í fyrra, sem var hún Hera frá Efra-Langholti, sem er undan Val frá sama bæ :-D

Frétt með öllum úrslitum má finna á Eiðfaxi.is / Folaldasýning.
Myndir frá Sugurði Sigmunds.

17.03.2011.

Höfum nú uppfært sölusíðuna okkar og bætt þeim Ísadór og Val inn. En þessir frábæru vel ættuðu folar eru falir ef rétt verð fæst. Óskum eftir tilboðum.
Nánari upplýsingar á sölusíðu.

Now we are going to offer this wonderful stallion with top pedigree to sale, and ask for bids.  
More informatin one sales page:

07.03.2011.

Picture
Fjórgangmót Uppsveitadeildar Æskunnar fór fram í reiðhöllinni á Flúðum á laugardaginn.  Alls voru 21 keppandi öttu kappi í spennandi keppni þar sem hart var barist um efstu sæti og stig í einstaklings- og liðakeppni.
Viktor Logi stóð sig vel í fjórgangnum á Glóa frá Hömrum. Flottir félagar á ferð :-)


01.03.2011.

Sá skemmtilegi atburður varð hér í Efra-Langholti síðasta laugardag að hópur Skagfirðinga kom í heimsókn í hesthúsið og var heldur en ekki glatt á hjalla eins og við er að búast þegar Skagfirðingar eru annarsvegar. Þetta voru miklir söng og hestamenn og heitir félagsskapur þeirra RIDDARAR NORÐURSINS skemmtilegt. Eftir að þeir voru búnir að skoða í hesthúsinu og svala þorstanum, buðu þeir okkur í kvöldverð í Myrkholti þar sem hópurinn gisti. Þökkum við þessu góða fólki fyrir skemmtilegan dag og frábæran kvöldverð sem að kokkurinn Sigga hristi framm úr erminni.

25.02.2011.

Það er nóg að gera í hesthúsinu alla daga. Það var samt nauðsynlegt að líta upp og hlaupa út með myndavélina þegar graddarnir voru að skemmta sér úti ;-)  Þetta eru þer Leiftur (á 4.v.) Aronssonur, Valur (á 5.v.) Krummason og Ísadór (á 5.v) Þóroddsson. Smellið á myndirnar til að sjá stærri ;-)

14.02.2011.

Viktor Logi tók þátt í uppsveitardeild æskunar  og varð í 4.sæti í smalanum, yngsti keppandinn. Hann var á hryssuni Eldingu sem Bára vinkona mín á og er alger perla. Takk Raghildur fyrir hjálpina.

09.02.2011.

Afmælisgjöfin frá Ragga er komin í hús, en það er þessi stórmyndarlegi brúnblesótti gaur. Það mættu því vera miklu fleiri afmælisdagar á hverju ári, þótt þetta dugi nú bara fínt. Núna hefst svo höfuðverkurinn hvað hestefnið verður látið heita. Allar tillögur vinsamlega sendið áfram með hugskeyti :-D

06.02.2011.

 Vetur konungur er í heimsókn þessa dagana og það var mikið  fjör hjá hrossunum í snjónum. Leyftur á 4.vetur undan Ísold og Aroni tók á því í snjónum, sömuleiðis Valur Krummason og Ísadór Þóroddsson. Allt flottir folar. Smellið á myndirnar til að sjá stærri...og fá uppl um hestana ;-)

03.02.2011.

Nú er svo mikið að gera á bænum að enginn tími til að uppfæra fréttir. Okkur vantar enn tamningamann svo frúin komist inn svona um blánóttina. Það er summsé fullt hús af hrossum og  hrossin eru smátt og smátt að komast í trymm :-)  Það er víst Landsmót framundan krakkar !

12.01.2011.

Picture
Við eru að leita að tamningamanni til starfa hjá okkur í vetur. Hesthúsið er rúmgott og höfum við inniaðstöðu til tamninga.  Í húsinu er fullt af spennandi hrossum sem stefnt er á að sýna í vor.
Á staðnum er lítil íbúð fyrir viðkomandi.

 Áhugasamir hafi samband í  síma:  Berglind: 848-5811  eða  Ragnar: 847-3015

01.01.2011.

Picture
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og takk fyrir allt gamalt og gott :-D

Nýjar fréttir á nýju ári ! Hægt er að skoða gömlu fréttasíðuna okkar með því að fara í more... og smella á fréttir 2010. Þar er margt skemmtilegt að finna og fullt af myndum frá liðnu ári ;-)

01.01.2011.

Þetta er nú kannski gömul frétt, frá því í fyrra... en látum hana nú gossa ! En þann 29 desember 2010 rákum við hryssurnar heim og tókum folöldin undan þeim og héldum líka eftir ungu hryssunum sem eiga að byrja aftur í þjálfun . Þetta gekk mjög vel veðrið var dásamlegt og strákarnir notuðu eithvað af orkunni sem hefur hlaðist upp um jólin.
Create a free website with Weebly